STEFNUMÁL E-LISTANS
FJÁRMÁL OG REKSTUR
Ábyrgð í rekstri og fjármálastjórnun.
Höldum áfram að hækka frístundastyrk fyrir börn og einfalda umsóknar- og endurgreiðslukerfið í gegnum íbúagátt.
Tryggjum áfram hagsýni og jafnræði í útboðum og innkaupum sveitarfélagsins.
HEILSUBÆRINN OKKAR
Vogar er heilsueflandi bær, E-listinn vill efla það enn frekar.
E-listinn sér íþróttafélögin okkar sem hjarta heilsubæjarins Voga. Þess vegna höfum við aukið stuðning við íþróttafélögin undanfarin ár og samið við Ungmennafélagið Þrótt um rekstur íþróttamiðstöðvarinnar
Setjum okkur heilsueflandi markmið sem endurspeglast í öllu starfi sveitarfélagsins.
Tengja stígakerfið milli Voga, Reykjanesbæjar og Grindavíkur sem næsta skref í að bæta hjólaleiðina frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgarsvæðisins.
Aukin fræðsla til íbúa um heilbrigðan lífstíl og útivistarmöguleika í sveitarfélaginu m.a. með heilsuþingi í samstarfi við stofnanir og félög í samfélaginu.
FRÆÐSLUMÁL
E-listinn mun standa vörð um gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Hefja stækkun grunnskólans í takt við þarfir og fjölgun íbúa.
Við munum endurhanna og byggja upp skólalóðina við Stóru-Vogaskóla í samstarfi við nemendur og starfsfólk skólans, með hliðsjón af stækkun skólans.
Fara í þarfagreiningu á stækkun eða byggingu nýs leikskóla í takt við þarfir og fjölgun íbúa.
Halda áfram innleiðingu og samræmingu heilsustefnu sveitarfélagsins.
Skólagögn verði útveguð af sveitarfélagi.
E-listinn er tilbúinn að endurskoða hámarks vistunartíma barna í leikskóla með hagsmuni barna, foreldra og fagaðila að leiðarljósi.
Gera starfsumhverfi leikskóla meira hvetjandi fyrir fagmenntaða.
ATVINNUMÁL
Stuðlum að uppbyggingu verslunar og þjónustusvæðis á miðbæjarsvæðinu.
Atvinnumál verði fastur liður á dagskrá bæjarráðs með það að markmiði að stuðla að sköpun atvinnutækifæra. Marka þarf atvinnustefnu til lengri tíma.
Leita eftir samstarfi við nágrannasveitarfélög við að fá stærri verkefni inn á svæðið.
Skoða landeldi sem mögulegt tækifæri til atvinnuuppbyggingar.
Heitt og kalt vatn inn á Strönd, bæði fyrir íbúa og fyrirtæki tengd mögulegri uppbyggingu í Flekkuvík.
UMHVERFISMÁL
Koma upp hraðhleðslustöð í sveitarfélaginu.
Gera grænan áningastað á Glaðheimareitnum þar sem sagan fær sitt pláss.
Hundagerði á svæði okkar rétt við Iðndalinn.
Hvetja og fræða íbúa til umhverfisvænni lífshátta.
Vinna með grunnskóla og leikskóla í samræmingu á grænfánaverkefninu.
Að tryggja sveitarfélaginu framtíðar vatnsból sem jafnframt yrði varavatnsból fyrir Suðurnesin. Vatnsbólið og vatnsveitan verði í eigu sveitarfélagsins.
Sjóvarnir til að vernda Vogatjörn.
Útbúa og kynna vel bílastæði stærri ökutækja við Iðndal 12.
Sveitarfélagið verði leiðandi í umhirðu og umhverfismálum.
Hvetja og leiðbeina íbúum við flokkun heimilsúrgangs.
Koma upp úti hreystitækjum og efla og fjölga leiksvæðum.
Lýsing á sleðasvæðið í Aragerði og sparkvöllinn við grunnskólann.
Halda áfram að led-væða lýsingu í sveitarfélaginu.
E-listinn vill kolefnisjafna sveitarfélagið m.a. með auknum trjágróðri.
ÍÞRÓTTA OG TÓMSTUNDAMÁL
Hefja vinnu við heildarskipulag íþróttarsvæðis og íþróttamannvirkja.
Styðja áfram við bakið á íþróttafélögum og öðrum félagasamtökum í sveitarfélaginu í anda samstarfssamninga sem E-listinn kom á.
Viðhalda heilsueflingarstyrk til eldri borgara og skoða samstarf við íþróttafélögin um íþróttaiðkun eldri borgara.
SKIPULAGSMÁL
Styrkja skipulagsmálin enn frekar og tryggja að ekki verði óþarfa tafir á uppbygginu í sveitarfélaginu. Vaxandi byggð kallar á fleiri hendur.
Heildstætt skipulag fyrir Hafnargötu reitinn og hafnarsvæðið þar sem höfnin er aðlaðandi frístundahöfn og útivistarsvæði. Stefnt að hönnunarsamkeppni.
Flytja endurvinnslustöðina og gera umhverfi hennar og ásýnd aðlaðandi.
Styðja áfram rannsóknarvinnu á flugvelli í Hvassahrauni með ríki og sveitarfélögum.
Ná samningum við landeigendur um uppskiptingu lands með framtíðaruppbyggingu í huga.
E-listinn vill öryggi í raforkuflutningum - E-listinn vill Suðurnesjalínu 2 í jörð.
Áframhaldandi endurnýjun gatna.
Halda áfram uppbyggingu reið-, hjóla- og göngustíga. Ná samningum við Vegagerðina um stóreflda uppbyggingu í þessum efnum.
Vinna með nágrannasveitarfélögum að tengingu byggðarlaganna.
Meta tækifæri uppbyggingar í Flekkuvík meðal annars skoða möguleikann á landeldi.
Vinna nýja umferðaröryggisáætlun sem nær til nýrra hverfa og útivistarsvæða.
FÉLAGS- OG VELFERÐARMÁL
Halda áfram samstarfi við Suðurnesjabæ í félags- og velferðarmálum.
Ráðgera kaup á félagslegum íbúðum.
Bæta aðgengi fyrir alla að stofnunum sveitarfélagsins.
Styðja áfram við félagsstarf eldri borgara.
Koma á félagsstarfi fyrir 16-18 ára ungmenni.
STJÓRNSÝSLA
Ráða hæfasta bæjarstjóra sem völ er á.
Halda áfram upplýstri umræðu um kosti og galla sameiningar.
Íbúagáttin verði aðgengileg á ensku og pólsku.
Hvetja til aukinnar sýnilegrar löggæslu.
SAMSTARFIÐ Á SUÐURNESJUM
Áfram öflugt samstarf við sveitarfélögin á Suðurnesjum.
Styðjum þá hugmynd að ný brennslustöð verði byggð á Suðurnesjum í samstarfi við ríkið og önnur sveitarfélög.
Styðjum hugmyndina um byggingu þjóðarhallar á Suðurnesjum í samvinnu við sveitarfélögin á Suðurnesjum.
JAFNRÉTTISMÁL
Jafnréttismál eru mikilvæg og leiðarljós í öllu starfi. Sköpum pláss fyrir alla í Vogum.
