FRAMBOÐSLISTINN

1.SÆTI
BIRGIR ÖRN ÓLAFSSON
Oddviti E-listans og bæjarfulltrúi flutti í Vatnsleysustrandarhrepp árið 1997 eftir að hafa fundið ástina í litla þorpinu. Biggi, eins og hann er alltaf kallaður, er sannur Þróttari og hafði, nokkrum árum áður en hann flutti í Vogana, tekið að sér starf knattspyrnuþjálfara og þjálfaði yngri flokka og síðar meistaraflokk um tíma. Það var því í raun appelsínugula stórveldið sem dró drenginn úr Keflavík í Voga og svo auðvitað fögur mær sem varð til þess að hann sneri ekki aftur.
Birgir er menntaður flugumsjónarmaður og knattspyrnuþjálfari og starfar í dag sem deildarstjóri á flugrekstrarsviði Icelandair. Sambýliskona hans er Helga Ragnarsdóttir kennari og flugfreyja og eiga þau þrjú börn, Eddu Björk sjúkraflutninga-/og slökkviliðskonu og nema, Jón Gest Ben nema og knattspyrnumann og Særúnu sem er nemi í Stóru-Vogaskóla.
Birgir er enginn nýgræðingur í bæjarmálunum. Leiðin lá í pólitík árið 1998 þegar hreppurinn var og hét. Hann hefur því starfað að sveitarstjórnarmálum í u.þ.b.20 ár með hléum. Hann er einn af stofnendum E-listans og hefur síðustu tvö kjörtímabili, auk þess að sitja í bæjarstjórn, gætt hagsmuna okkar í Brunavörnum Suðurnesja. Þar hefur hann verið óþreytandi við að berjast fyrir bættu öryggi í Vogum og kom m.a. að ákvörðun um að staðsetja slökkvibíl í bænum og koma upp varaliði í Vogum.
Áhugamál Birgis eru þó nokkur en íþróttir og útivist eru ofarlega á þeim lista ásamt ýmsu sem tengist flugi. Það væri líka óeðlilegt að nefna pólitíkina ekki sem áhugamál þar sem hún hefur verið samofin Bigga í svo langan tíma. Málin sem hann brennur fyrir eru mörg og á hann erfitt með að gera upp á milli þeirra enda margt sem þarf að fanga í nútímarekstri sveitarfélaga. Birgir Örn er framsýnn og réttsýnn leiðtogi, maður sátta og samtals.

2.SÆTI
EVA BJÖRK JÓNSDÓTTIR
Eva Björk Jónsdóttir skipar 2. sæti E-listans. Eva er alin upp á Hornafirði og þekkir því vel hvernig er að búa í litlu samfélagi og hversu mikilvægt það er að búa í sátt og samlyndi. Eva bjó í Danmörku og á Grænlandi í 10 ár en fluttist með fjölskyldunni aftur til Íslands árið 2017. Eva, eiginmaður hennar og 11 ára sonur hafa búið í Vogunum í rúm tvö ár og una hag sínum vel.
Árið 2011 lauk Eva B.Eng gráðu í alþjóðastjórnun og framleiðslutæknifræði frá tækniháskólanum í Odense og er núna á lokasprettinum að næla sér í meistaragráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Menntamál og hagur barna og ungmenna er það sem hún brennur fyrir og er svo heppin að vera í vinnu sem er líka áhugamálið hennar. Eva starfar sem deildarstjóri í tómstundamiðstöð þar sem aðaláherslan er á að efla börn og ungmenni og undirbúa þau út í lífið. Að hennar mati er það að vera partur af stærri heild og geta átt hlut í að efla framtíðina okkar viss forréttindi sem ekki má taka sem sjálfsögðum hlut.
Á persónulegu nótunum finnast Evu gæðastundir með ættingjum og vinum það besta sem hægt er að hugsa sér. Og bætir við að það má aldrei gleyma því að lifa og njóta. Eitt af því sem Eva fæ aldrei nóg af er að ferðast, enda leynast víða týndar perlur sem vert er að skoða.

3.SÆTI
FRIÐRIK VALDIMAR ÁRNASON
Friðrik Valdimar Árnason skipar 3. sætið hjá E-listanum. Hann hefur bæði tekið sæti sem varamaður í bæjarstjórn á þessu kjörtímabili og setið í skipulagsnefnd. Friðrik er uppalinn Vogabúi og bý hér ásamt eiginkonu sinni Helgu Ágústsdóttir og fjórum börnum.
Hann flutti til til Danmerkur árið 2005 til að læra byggingarfræði í Óðinsvéum og eftir það færði fjölskyldan sig til Köben í þrjú ár og þar sem Friðrik lærði orkuráðgjöf. Fjölskyldan flutti svo heim í Vogana árið 2013 og hefur tekið virkan þátt í samfélaginu alla tíð síðan.
Síðustu ár hefur Friðrik starfað sem orkuráðgjafi og heimsótt nánast öll sveitarfélög um landið og kynnst þeirra mikilvægu hlutverkum. Í dag starfa hann sem verkefnastjóri fjárfestinga hjá Isavia þar sem mörg spennandi verkefni eru fram undan næstu árin enda fyrirséð mikil uppbygging á flugvallarsvæðinu.
Félagsstörf eru Friðriki hugleikin og er það hans skoðun að í bæjarfélagi eins og okkar skapi félagsstörf bæjarsálina og þar fái íbúarnir einstakt tækifæri til að kynnast og vinna saman í þágu samfélagsins. Friðrik er Þróttari af lífi og sál og stóð á tíma á milli stanganna í marki Þróttar. Hann hefur starfað mikið í kringum félagið og er hreykinn af þeirri uppbyggingu sem hefur veri á síðustu árum. Börnin eru auðvitað líka harðir Þróttarar og hafa öll stundað íþróttir hjá félaginu.
Danmerkurárin leiddu Friðrik í í norræna félagið í Vogunum þar sem hann hefur tekið þátt í 2-3 viðburðum á ári. Hann hefur gaman af allri útivist og nefnir hvað það sé frábært að stunda fjölbreytta útiveru hér í Vogunum. Samverustundir með fjölskyldu og vinum eru honum mikilvægar og því leggur Friðrik áherslu á að Vogar verði áfram barnvænt samfélag þar sem gott er að búa.

4.SÆTI
INGÞÓR GUÐMUNDSSON
Ingþór Guðmundsson, bæjarfulltrúi, forseti bæjarstjórnar og formaður stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum skipar 4. sæti E-listans. Ingþór og Rósa konan hans hafa búið hér lengi og það vill svo til að yngsta barn þeirra hjóna var einmitt 1.000 íbúi Voga í desember árið 2005. Ingþór er þriggja barna faðir og tveggja barna afi sem fór í sveit á sumrin sem strákur, er mikill hestamaður og dýravinur.
Ingþór byrjaði í bæjarpólitíkinni sem varabæjarfulltrúi E-listans árið 2010 og hefur ekki látið deigan síga síðan þá. Hann hefur verið forseti bæjarstjórnar síðastliðin tvö kjörtímabil. Hann er þekktur fyrir að vera einstaklega ljúfur leiðtogi, fastur fyrir þegar kemur að hagsmunum bæjarbúa en diplómatískur leiðtogi sem hlustar og finnur lausnir sem sátt ríkir um.
Ingþór er mikill talsmaður endurvinnslu enda vann hann í endurvinnslugeiranum um áratuga skeið. Hann starfar nú sem rekstrarstjóri hjá Aalborg Portland í Helguvík. Ingþór hefur setið í skipulagsnefnd allan sinn pólitíska feril og eru skipulagsmálin honum hugleikin. Nú fer í hönd mjög spennandi uppbyggingartími í Vogum sem Ingþór langar að halda áfram að skipuleggja og leggja sitt lóð á vogaskálarnar við að skapa spennandi íbúðatækifæri fyrir fjölbreytt mannlíf.
Þegar Ingþór er ekki að sinna bæjarmálunum eða félagsstarfi hér í Vogum brunar hann upp í Borgarfjörð þar sem þau Rósa eru að byggja sér sumarhús með dyggri aðstoð barna og vina. Hann mun því geta notið þess að hlusta á lóuna syngja heima í Vogunum og þrestina í Borgarfirðinum þegar hamarshöggunum linnir. Það hentar einkar vel fyrir náttúrubarnið Ingþór.

5.SÆTI
HANNA LÍSA HAFSTEINSDÓTTIR
Hanna Lísa Hafsteinsdóttir, lögfræðingur, skipar 5. sæti E-listans. Hún er fædd og uppalin í Vogunum en á námsárunum bjó hún bæði í Hafnarfirði og Reykjavík. Hún fluttist til Noregs þar sem hún bjó í Osló. Yndisleg ár í Noregi nýtti hún til að bæta vel í reynslubankann. Vann á lögmannsstofu, stofnaði fyrirtæki og bætti tveimur börnum í barnahópinn. Eftir sjö ára búsetu í Noregi var þó kominn tími til að halda heim og völdu þau hjónin að flytja í hennar gömlu heimabyggð. Þau hafa nú komið sér vel fyrir og byggt sér hús á nýja miðbæjarsvæðinu, í Breiðuholti, þar sem saltfiskurinn var breiddur til þerris hér áður fyrr.
Hann Lísa brennur fyrir réttindum barna og uppeldismálum. Hún er 5 bara móðir og eru börnin hennar 15 ára, 13 ára, 11 ára, 4 ára og tæplega 2 ára. Hanna Lísa hefur einnig mikinn áhuga á umhverfisvernd. Hún leggur áherslu á að saman finnum við lausnir fyrir bæinn okkar og samfélagið. Átök leiði okkur ekki neitt en samtal og samvinna leggi grunninn að góðu samfélagi.
Hennar bestu stundir eru með fjölskyldunni en hún á stóra fjölskyldu hér í Vogunum. Hún nýtur þess að hreyfa sig, hefur lagt stund á jóga í mörg ár, finnst gaman að ganga og gildir það einu hvort það er hringur í kringum bæinn okkar góða eða um fjöll og firnindi.

6.SÆTI
RAGNAR KARL KAY FRANDSEN
Ragnar Karl Kay Frandsen 26 ára vélfræðingur skipar 6. sæti E-listans. Ragnar Karl er uppalinn Vogabúi og á ættir að rekja bæði í móður- og föðurætt í Vogana. Þessi ungi flotti maður hefur gert ýmislegt áhugavert. Hann hefur ferðast um allan heim í heimsreisu fyrir fjórum árum, smíðað formúlubíl og dregið nokkra góða Vogaþorska með afa sínum rétt fyrir utan grjótgarðinn.
Helstu áhugamál Ragnars Karls eru hönnun, útfærsla og smíði sem einmitt varð til þess að hann tók þátt í verkefni í Háskóla Íslands sem leiddi hann og félaga hans til að keppa í Formula Student keppninni þar sem teymið hannaði og smíðaði lítinn kappakstursbíl.
Ragnari Karli finnst mikilvægt að ungt fólk láti til sín taka í samfélaginu og þess vegna bíður hann sig fram að þessu sinni. Vogarnir eiga framtíðina fyrir sér og hér eru ótal tækifæri. Það er mikilvægt að blanda saman reynslu og nýjum hugmyndum og það er einmitt það sem Ragnari Karli finnst að náðst hafi í góðri blöndu frambjóðenda hjá E-lisanum.

7.SÆTI
INGVI ÁGÚSTSSON
Ingvi Ágústsson tölvunarfræðingur skipar 7. sætið á E-listanum en hann starfar sem forstöðumaður rekstrarstýringar hjá Reiknistofu Bankanna. Ingvi hefur sinnt menntamálunum í gegnum fræðslunefnd á þessu kjörtímabili. Hann lætur þó ekki þar við sitja og er nú um það bil hálfnaður í MBA námi hjá The Universiy of the Highlands and Islands sem er í samtarfi við Háskólann á Akureyri.
Ingvi býr ásamt konu sinni, sonum og gæludýrum í gömlu byggðinni þar sem þau hafa verið að nostra við að gera upp húsið sitt í Aragerði. Helstu áhugamál Ingva eru að ferðast og verja tíma með fjölskyldunni sinni. Hann er einnig mjög mikill dýravinur og gerir ekki upp á milli katta og hunda. Þar sem Ingvi ver mestum hluta vinnudagsins fyrir framan tölvuna finnst honum gott að vinna eitthvað með höndunum í frítímanum.
Ingvi brennur fyrir fræðslumálin og hefur oft sagt söguna af því hversu frábært honum fannst að vera með börn með sérþarfir í Stóru-Vogaskóla. Þegar fjölskyldan flutti í Vogana byrjuðu miðju synirnir að blómstra. Yngsti sonurinn hefur svo ekkert þekkt annað en að vera blómstrandi Voga-kútur.

8.SÆTI
GUÐRÚN KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR
Guðrún Kristín Ragnarsdóttir líffræðingur, hestakona og kennari í Stóru-Vogaskóla skipar 8. sæti E-listans. Guðrún hefur verið virk í þátttöku í umhverfismálum og er hún full af góðum hugmyndum að áframhaldandi vinnu á því sviði. Einnig eiga menntamál stóran hluta af áhuga Guðrúnar og hlakkar hana til að taka þátt í skólaþróun í Stóru-Vogaskóla. Guðrún veit að félagasamtök í Vogum eru af öllum stærðum og gerðum og tækifærin sem felast í þeim eru spennandi og gefa samfélaginu skemmtilegt líf. Henni finnst því mikilvægt að stuðla að blómlegu umhverfi fyrir félögin að vinna í.
Guðrún veit fátt betra en að ferðast með fjölskyldu og góðum vinum og finnst útsýnið einna best á milli eyrnanna á hesti.
Guðrún er uppalin í Vogunum og býr hér ásamt eiginmanni og þremur börnum þeirra og getur ekki hugsað sér neitt betra en að búa hér í návígi við náttúruna okkar í góðu samfélagi.

9.SÆTI
DAVÍÐ HARÐARSON
Davíð Harðarson skipar 9. sætið hjá E-listanum. Hann er alinn upp í Biskupstungum, leit við í stutta stund í höfuðborginni en fann svo sveitasæluna og rólega barnvæna umhverfið í Vogum árið 2007. Hann er alsæll með búsetuna en Davíð og Svana Ósk, eiginkona hans búa í Norður-Vogunum ásamt þremur sonum.
Davíð er fiskeldisfræðingur að mennt og hefur starfað í faginu síðastliðin 12 ár, meðal annars hjá Benchmark Genetics Iceland (áður Stofnfiskur) sem er með eina af starfsstöðum sínum í Vogavík.
Davíð er mikill fjölskyldumaður en fyrir utan samveru með sínum nánustu hefur hann einna mest gaman af veiði, ferðalögum og almennri útivist. Hann hefur verið virkur í ýmsum félagsstörfum og brennur fyrir nærsamfélagið og uppbyggingu þess.
Davíð hefur komið talsvert að uppbyggingu íþróttasvæðis sveitarfélagsins og var meðal þeirra sjálfboðaliða sem byggðu stúkuna við fótboltavöllinn svo eitthvað sé nefnt. Davíð sér mikil tækifæri í stækkandi samfélagi og telur að með því skapist en styrkari grundvöllur til að byggja upp frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunar. Að hans mati er framtíðin björt í íþrótta og félagsstarfi í Vogum.

10.SÆTI
MARKO BLAGOJEVIC
Knattspyrnumaðurinn frái Marko Blagojevic skipar 10. sæti E-listans. Marko er fæddur og uppalinn í Serbíu og kom fyrst til Íslands sumarið 2008 sem atvinnumaður í knattspyrnu. Fyrstu árin spilaði hann fótbolta hér á sumrin, fyrir hin ýmsu félög, en fór þess á milli heim til Serbíu. Árið 2017 kom hann í Vogana ásamt konu sinni Ivönu Blagojevic og spilaði fyrir Þrótt Vogum næstu þrjú tímabil. Eftir það tók við starf sem þjálfari en hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Þrótti í um 2 ár.
Svo fór að Marko og Ivana sneru ekki aftur heim til Serbíu eins og á fyrstu Íslandsárunum. Þau hjónin hafa kynnst góðu fólki og líkar afar vel í Vogum, það vel að þau hafa nú nýverið keypt sína fyrstu fasteign í miðbæjarhverfinu og hér vilja þau búa. Marko brennur eðlilega fyrir íþróttalífi bæjarins, ungliðastarfi og að hér sé samfélag þar sem börn geta iðkað sína íþrótt af kappi við topp aðstæður. Heilsueflandi samfélag er því forgangsmál í hans huga.
Þótt Þróttur sé stórveldi (eins og allir vita) er knattspyrnuþjálfunin ekki fullt starf. Marko og eiginkona hans starfa bæði hjá Benchmark Genetics í Vogum, stunda nám í íslensku og hafa aðlagast samfélaginu í Vogum mjög vel. Þau vita að hingað er gott að flytja og fagna því fleiri nýjum íbúum og skilja vel hvað það er sem dregur fólk að staðnum.

11.SÆTI
TINNA HULD KARLSDÓTTIR
Tinna Huld Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur skipar 11. sæti E-listans. Tinna starfar sem teymisstjóri í heimahjúkrun hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og finnst starfið dásamlegt. Eins og gefur að skilja hefur verið mikið að gera hjá Tinnu líkt og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum í framlínunni frá því að heimsfaraldur kórónuveirunnar hófst. Það krefst natni og gæsku að vinna þetta starf því í heimahjúkrun eru starfmenn gestir á heimilum fólks og þurf að finna lausnir sem henta hverjum og einum skjólstæðingi hverju sinni. Styrkleikar Tinnu liggja einmitt þar og hefur hún á kjörtímabilinu verið fulltrúi í félagsmálanefnd sem m.a. fór með hinn viðkvæma málaflokk barnavernd. Fagmennska og nærgætni Tinnu hefur nýst vel í þeim störfum. Hún leggur áherslu á að vel sé staðið að fjölskyldu- og velferðarmálum.
Tinna Huld flutti ásamt Reyni manninum sínum í Voga árið 2016 og eiga þau þrjú börn, einn hund og kött. Tinna er mikill dýravinur og dreymir helst um að fá hænur í garðinn. Hún segir að ekkert sé betra en að koma aftur heim í „sveitina“ eftir annasaman dag í hamaganginum í höfuðborginni.
Þrátt fyrir að hafa gaman af ferðalögum jafnt innanlands sem utan segist Tinna vera einstaklega heimakær. Frelsið sem börnin hafa fengið í Vogunum sé einstakt og umhverfið skapi ákveðna ró sem er mjög mikilvæg og einn helsti kostur samfélagsins.

12.SÆTI
ELÍSABET ÁSTA EYÞÓRSDÓTTIR
Elísabet Ásta Eyþórsdóttir doktorsnemi í landfræði við Háskóla Íslands skipar 12. sæti E-listans. Ásta, eins og hún er alltaf kölluð, hefur verið virk í nefndarstarfi á þessu kjörtímabili og bæði setið í fræðslunefnd og umhverfisnefnd.
Ásta er mikill grúskari og er með Ms. gráðu í jarðfræði. Það kemur því ekki á óvart að náttúruvísindi, jarðsaga og ferðalög með fjölskyldunni eru hennar helstu áhugamál. Ásta leggur megin áherslu á umhverfis- og loftslagsmál. Hún veit að lausnirnar í þeim málum liggja bæði í stóru og smáu, hjá heimilunum en líka í samstarfi við nágranna sveitarfélögin. Við getum öll tekið þátt í grænu skrefunum.
Ásta og Gísli maðurinn hennar hafa búið ásamt tveimur dætrum í Norður-Vogunum en munu fljótlega flytjast í nýja hverfið sem er að byggjast upp í Grænuborg. Þau hafa búið í Vogum frá 2012 og finnst dásamlegt að vera hér og eru spennt að fá að vera meðal frumbyggja í nýju hverfi.

13.SÆTI
BERGUR ÁLFÞÓRSSON
Bergur Álfþórsson leiðsögumaður og bæjarfulltrúi skipar 13. sætið hjá E-listanum. Bergur hefur búið í Vogum frá aldamótum og unir hag sínum vel í Kirkjugerðinu þar sem alltaf er líf og fjör, heitt á könnunni og pönnsur a la Bergur á góðum dögum.
Bergur hefur tekið þátt í bæjarmálunum frá 2002 þegar hann sinnti nefndarstörfum og hefur setið sem varabæjarfulltrúi og bæjarfulltrúi frá 2006 og sem formaður bæjarráðs frá 2014.
Bergur er einn af stofnfélögum E-listans og hann er stoltur af að hafa fengið að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem E-listinn hefur staðið fyrir síðustu ár, eins og nýju miðbæjarsvæði, nýju áhaldahúsi, endurgerð fráveitu, endurgerð gatna svo fátt eitt sé nefnt.
Ísland er leikvöllur Bergs. Í starfi sínu fær hann að leiða útlendinga um landið fagra og í frítíma sínum leitar hann í náttúruna með Svanborgu sinni. Í ferðum um landið hittir Bergur allskonar jólasveina....

14.SÆTI
ÞORVALDUR ÖRN ÁRNASON
Þorvaldur Örn Árnason skipar 14. sæti E-listans. Allir sem þekkja Þorvald vita að hér er á ferð hinn mesti öðlingur og fróðleiksbrunnur. Þorvaldur er ættaður úr Skaftártungu og Hafnarfirði, fæddur 1947 í Reykjavík og uppalinn í Landeyjum. Hann hefur búið í Noregi, Ísafirði, Reykjavík, Reykjanesbæ og síðustu tvo áratugina í Sveitarfélaginu Vogum.
Þorvaldur lærði líffræði og umhverfisfræði í Háskóla Íslands og Háskólanum í Þrándheimi. Síðar bætti hann við sig uppeldis- og kennslufræði við Háskóla Íslands og kenndi um árabil við Stóru-Vogaskóla þar sem hann var einstaklega metnaðarfullur og hugmyndaríkur kennari.
Þorvaldur er kvæntur Ragnheiði Elísabetu Jónsdóttur leikskólakennara en þau hjónin eiga eina uppkomna dóttur, bæði eiga börn frá fyrra hjónabandi og svo hafa barnabörn bæst í hópinn.
Sjálfur segist Þorvaldur löngum hafa verið að drukkna í áhugamálum. Maðurinn slær aldrei slöku við. Hann er félagi í Landvernd og Sjálfboðaliðasamtökum um náttúruvernd, hann er í hljómsveit, syngur í sönghóp, er virkur félagi í E-listanum, skrifar nú um sögu skólans og svo mætti lengi telja. Þrátt fyrir að hafa látið af störfum fyrir aldurs sakir vottar ekki fyrir leiða hjá Þorvaldi enda í fullu starfi við að sinna áhugamálunum.
Þorvaldur trúir á að með því að stýra samfélaginu til meiri jöfnuðar, öryggis og friðar stuðlum við að farsælla og hamingjusamara lífi fólks. Þorvaldur er maður hugsjóna og heildarinnar.
