FRAMBOÐSLISTINN

1.SÆTI
Birgir Örn Ólafsson
Birgir Örn er oddviti E-listans. Hann flutti í Vatnsleysustrandarhrepp árið 1997 úr Keflavík þar sem hann ólst upp. Biggi er mikill íþróttaáhugamaður og hafði, nokkrum árum áður en hann flutti í Vogana, tekið að sér starf knattspyrnuþjálfara og þjálfaði yngri flokka og síðar meistaraflokk Þróttar um tíma.
Biggi er menntaður flugumsjónarmaður og knattspyrnuþjálfari og starfar í dag sem deildarstjóri á flugrekstrarsviði Icelandair. Sambýliskona hans er Helga Ragnarsdóttir flugfreyja og eiga þau þrjú börn, Eddu Björk slökkviliðs- og sjúkrafluttningamann hjá BS, Jón Gest Ben sérkennsluleiðbeinanda, nema og knattspyrnumann hjá Reyni í Sandgerði og Særúnu sem er nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Fyrstu skrefin í pólitík voru tekin árið 1998 þegar hreppurinn var og hét. Biggi hefur því starfað við sveitarstjórnarmál í yfir 20 ár með hléum. Hann er einn af stofnendum E-listans og hefur, auk
þess að sitja í bæjarstjórn, gætt hagsmuna okkar í Brunavörnum Suðurnesja. Þar hefur hann barist fyrir bættu öryggi í Vogum og kom m.a. að ákvörðun um að staðsetja slökkvibíl í bænum og koma upp varaliði í Vogum sem nú stendur til að efla enn frekar í ljósi fjölgunar í sveitarfélaginu.
Áhugamál Bigga eru þónokkur en íþróttir og flugtengd málefni eru ofarlega á þeim lista. Það væri líka óeðlilegt að nefna sveitarstjórnamál ekki sem áhugamál þar sem þau hafa verið samofin honum í svo langan tíma. Hann brennur fyrir hin ýmsu málum og á hann erfitt með að gera upp á milli þeirra enda margt sem þarf að huga að í rekstri sveitarfélaga. Þó má segja að atvinnumál eigi hug hans allan um þessar mundir enda mikilvæg sveitarfélaginu og sjálfbærni þess.
Birgir Örn hefur talað fyrir nýjum vinnubrögðum í bæjarráði og bæjarstjórn sem einkennast af markmiðasettri og lausnamiðaðri nálgun þar sem samvinna er lykilatriði líkt og beitt hefur verið á þessu kjörtímabili sem senn líður undir lok.

2.SÆTI
Eva Björk Jónsdóttir
Eva Björk skipar 2. sæti E-listans. Hún er alin upp á Hornafirði og ber sterkar taugar til lífsins í litlu samfélagi þar sem fólk styður hvert annað og samvinna skiptir máli.
Eftir tíu ár erlendis, í Danmörku og á Grænlandi, flutti hún aftur heim til Íslands árið 2017 og hefur búið í Vogum undanfarin sex ár. Hún er gift og á 14 ára son og hefur fjölskyldan komið sér vel fyrir og notið þess að vera hluti af samfélaginu.
Eva Björk er með B.Eng gráðu í alþjóðastjórnun og framleiðslutæknifræði fráTækniháskólanum í Odense og er að ljúka meistaragráðu í tómstunda- og félagsmálafræði.
Hún hefur lengi haft brennandi áhuga á velferð barna og ungmenna og starfar sem deildarstjóri í tómstundamiðstöð þar sem hún fær að vinna að því sem hún trúir á — að efla ungt fólk og styðja það til framtíðar.
Á þessu kjörtímabili hefur Eva Björk setið í bæjarstjórn og bæjarráði, verið formaður fræðslunefndar og tekið þátt í starfi frístunda- og menninganefndar. Sú reynsla hefur verið bæði lærdómsrík og gefandi og hefur styrkt hana í þeirri trú að með samvinnu sé hægt að ná góðum árangri fyrir samfélagið okkar.
Fyrir Evu Björk skiptir mestu máli að byggja upp samfélag þar sem öllum líður vel og fá tækifæri til að vaxa og dafna. Hún leggur sitt af mörkum með einlægni og ábyrgð og vill halda áfram að vinna að því að gera gott samfélag enn betra.
Í frítíma sínum á Eva Björk sínar bestu stundir með fjölskyldunni. Hún hefur einnig gaman af því að ferðast, kynnast nýjum stöðum, fólki og menningu og safna þannig upplifunum sem víkka sjóndeildarhringinn.

3.SÆTI
Friðrik Valdimar Árnason
Friðrik Valdimar skipar 3. sæti hjá E-listanum. Hann hefur tekið sæti í bæjarstjórn á þessu kjörtímabili og setið í skipulagsnefnd, þar sem hann hefur öðlast dýrmæta reynslu af málefnum sveitarfélagsins. Friðrik er uppalinn Vogabúi og býr hér ásamt eiginkonu sinni, Helgu Ágústsdóttur, og fjórum börnum þeirra.
Friðrik flutti til Danmerkur árið 2005 þar sem hann lærði byggingarfræði í Óðinsvéum. Að því loknu bjó fjölskyldan í Kaupmannahöfn í þrjú ár þar sem hann bætti við sig námi í orkutæknifræði. Árið 2013 flutti fjölskyldan aftur heim í Vogana og hefur síðan þá tekið virkan þátt í samfélaginu.
Síðustu ár hefur Friðrik starfað í orkugeiranum og heimsótt nánast öll sveitarfélög landsins, þar sem hann hefur kynnst mikilvægu hlutverki þeirra og fjölbreyttum áskorunum. Í millitíðinni starfaði hann hjá Isavia sem verkefnastjóri fjárfestingaverkefna og öðlaðist þar víðtæka reynslu af uppbyggingu og þróun stórra verkefna. Í dag nýtir hann þessa reynslu til að leggja sitt af mörkum í þágu sveitarfélagsins.
Félagsstörf eru Friðriki hugleikin og telur hann þau lykilþátt í að skapa bæjarsálina. Í slíku umhverfi fá íbúar einstakt tækifæri til að kynnast og vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Friðrik er Þróttari af lífi og sál og stóð á sínum tíma á milli stanganna í marki Þróttar og hefur starfað mikið í kringum félagið ásamt því að sitja í stjórn.
Danmerkurárin leiddu Friðrik inn í starf Norræna félagsins í Vogunum þar sem hann hefur tekið þátt í viðburðum síðustu ár.
Hann hefur mikinn áhuga á útivist og telur tækifærin sem náttúra Voganna hefur upp á að bjóða gera Vogana að frábærum stað til að búa á. Samvera með fjölskyldu og vinum skiptir hann miklu máli.
Friðrik vill nýta reynslu sína úr atvinnulífinu og nefndarstörfum til að stuðla að skynsamlegri og ábyrgri uppbyggingu í sveitarfélaginu þar sem lífsgæði fjölskyldna eru ávallt í fyrirrúmi. Hann leggur áherslu á að Vogar verði áfram barnvænt og samheldið samfélag þar sem gott er að búa og ala upp fjölskylduna.

4.SÆTI
Ingþór Guðmundsson
Ingþór skipar 4. sæti E-listans. Hann og Rósa konan hans hafa búið í Vogum síðan 2005. Það vill svo skemmtilega til að yngsta barn þeirra hjóna var einmitt þúsundasti íbúi Voga í desember það sama ár. Ingþór er þriggja barna faðir og fimm barna afi. Í Vogum finnst Ingó gott að búa og frábært að ala upp börn. Þau hjónin eru svo heppin að öll börnin þeirra hafa ákveðið að búa hér í bæ.
Nálægðin við náttúruna eru forréttindi sem íbúar sveitarfélagsins njóta og er fjölskylda Ingó þar enginn eftirbátur. Göngur og hlaup á stígum og í óspilltri náttúru eru meðal annars áhugamál þeirra hjóna.
Ingþór starfar sem rekstrarstjóri hjá Aalborg Portland í Helguvík.
Hann hefur sinnt ýmsum störfum fyrir samfélagið okkar í Vogum. Hann hefur setið í bæjarstjórn í tíu ár, bæði sem bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar ásamt því að sitja í skipulagsnefnd, stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og stjórn Kölku. Auk þess hefur hann verið varamaður í hinum ýmsu nefndum hér í Vogum og á sameiginlega vettvanginum á Suðurnesjum,
Ingó er þekktur fyrir að vera einstaklega ljúfur leiðtogi, fastur fyrir þegar kemur að hagsmunum bæjarbúa en diplómatískur leiðtogi sem hlustar og finnur lausnir sem sátt ríkir um.
Ingó vill halda áfram uppbyggingu í Vogum og stuðla að fjölskylduvænu, samheldnu samfélagi sem hlúð er að. Í Vogum á öllum að líða vel.
Inga Rut Hlöðversdóttir

5.SÆTI
Inga Rut Hlöðversdóttir
Inga Rut skipar 5. sæti E-listans. Hún er gift Guðjóni Gíslasyni og saman eiga þau sex börn og 11 barnabörn. Inga er borin og barnfæddur Vogabúi. Hefur prófað að búa annarsstaðar en kemur alltaf aftur enda gott að búa í Vogum.
Inga lærði gull og silfursmíði í Tækniskólanum í Reykjavík og bætti síðar við sig meistaranámi í faginu. Hún var um tíma með verkstæði heima í bílskúrnum þar sem hún naut þess að vinna að ýmsum verkefnum, m.a. giftingahringjum fyrir oddvita listans. Á sama tíma rak hún litla gjafavöruverslun hér í Vogum. Hún rekur fyrirtækið Við sjóinn ehf. sem heldur utan um rekstur tjaldsvæðisins í Vogum. Inga hefur gaman af fólki og því sem það skapar, bæði handverk og nýsköpun. Hún hefur starfað sem Kirkjuvörður í Ástjarnarkirkju frá árinu 2019.
Inga Rut hefur verið meðlimur í Framboðsfélagi E-listans frá stofnun þess árið 2006. Hún hefur tekið að sér ýmis störf á sviði bæjarmála í Vogum og á samstarfsvettvangi sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Hún hefur sinnt starfi bæjarfulltrúa, bæði aðal og vara, setið í stjórn Kölku m.a. sem formaður stjórnar, setið í stjórn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, í stjórn Dvalarheimilis aldraðra á Suðurnesjum og á líðandi kjörtímabili var hún varafulltrúui í Fjölskyldu og velferðarnefnd.
Inga Rut brennur fyrir málefnum eldri borgara og situr sem varafulltrúi í sameiginlegu Öldungaráði Suðurnesjabæjar og Voga. Hún vill sjá aukna þjónustu við aldraða í Vogum þegar fram líða stundir. Í stækkandi samfélagi fjölgar líka í þeim hópi íbúa. Auk þess finnst henni uppbygging atvinnu í sveitarfélaginu nauðsynleg, ekki síst atvinna sem snýr að nýsköpun.
Þau hjónin elska að fara í sveitina þegar færi gefst og njóta kyrrðar, fara í göngur og veiða. Samverustundir með börnum og barnabörnum eru
alltaf fallegar gæðastundir sem þau njóta mjög. Af nægum verkefnum er að taka með afkomendahópnum. Fjöruferðir í Vogunum er eitthvað sem aldrei nóg er af enda fjaran í Vogunum einstaklega rík af allskonar lífverum og spennandi ævintýrum.

6.SÆTI
Adrian Krawczuk
Adrian skipar 6. sæti E-listans. Hann lauk grunnskólanámi í Stóru-Vogaskóla og hélt þaðan í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem hann lærði rafvirkjun. Hann útskrifaðist bæði af rafvirkjabraut og með stúdentspróf árið 2023 og lauk sveinsprófi í rafvirkjun í febrúar 2024. Í dag stundar Adrian nám við Háskólann í Reykjavík í rafiðnfræði með það að markmiði að öðlast meistararéttindi, en hann stefnir á útskrift vorið 2027.
Adrian hefur starfað sem rafvirki frá árinu 2019. Síðastliðið haust hóf hann einnig störf í félagsmiðstöðinni Borunni hér í bæ, þar sem hann hefur unnið með ungmennum og lagt sitt af mörkum til öflugs félagsstarfs.
Íþróttir hafa alltaf skipað stóran sess í lífi Adrians. Hann æfði knattspyrnu með Þrótti frá unga aldri og síðar með Njarðvík fram til 18 ára aldurs. Undanfarin ár hefur hann lagt stund á CrossFit og HYROX og hefur náð góðum árangri á þeim vettvangi. Hann vann meðal annars Íslandsmeistaratitil í HYROX í parakeppni ásamt vini sínum síðastliðið sumar.
Adrian hefur einnig tekið virkan þátt í félagslífi í gegnum tíðina, meðal annars í nemendaráði í grunnskóla og nefndarstörfum í framhaldsskóla. Hann hefur mikinn áhuga á uppbyggingu samfélagsins og leggur áherslu á að bæta aðstöðu og tækifæri fyrir ungmenni, börn og eldri borgara í bænum. Þá hefur hann einnig gaman af útivist og ferðalögum með vinum sínum.

7.SÆTI
Gunnar Richter
Gunnar Richter skipar 7. sæti E-listans. Hann er nýbúi í Vogum, býr í Grænubyggð ásamt konu sinni og þremur börnum. Það vill einmitt svo skemmtilega til að sonur Gunnars varð íbúi númer 2.000 í Vogunum.
Gunnar er fæddur í Reykjavík en uppalinn frá 6 ára aldri í Hafnarfirði, þar sem öll hans skólaganga fór fram eða þar til hann hóf nám við Háskóla Íslands árið 2013. Þaðan útskrifaðist hann árið 2017 með BS í viðskiptafræði með áherslu á fjármál. Meðfram viðskiptafræðináminu vann Gunnar hjá hótelkeðju í Reykjavík, fyrst í gestamóttöku en færði sig svo nær verkefnum tengdum viðskiptafræðinni. Í dag 10 árum síðar starfar hann enn fyrir sömu hótelkeðju en sem sérfræðingur á fjármálasviði, þar sem greining á rekstri og áætlanagerð stendur uppúr.
Gunnar brennur fyrir allskyns íþróttir og hreyfingu, þar stendur þó hæst fótbolti og handbolti sem hann æfði lengi vel.
Eftir að takkaskórnir voru lagðir á hilluna, hafa hlaup tekið yfir og finnst Gunnari fátt betra en gott útihlaup eftir að hafa verið límdur við tölvuskjá allan daginn.
Það sem skiptir Gunnar máli og dregur hann að bæjarpólitík er áhuginn á félagsstörfum og fræðslumálum. Hann telur liðsheild og samstöðu eitthvað sem draga megi frá reynslu sinni í íþróttum, að allir hafi rödd og unnið sé að sameiginlegri lausn fyrir alla.
„Saman getum við gert bæinn og samfélagið betra. Í gegnum félagsstörf og skóla tengjumst við sem samfélag og getum fundið lausnir saman.“
Gunnari er mikilvægt að allir hafi sömu tækifæri þegar kemur að menntun sem og félagsstörfum. Að fræðslumál og umhverfi barna og ungmenna sé eins og best verður á kosið, það er það sem gerir okkar samfélag enn betra, í nútíð og í framtíð.

8.SÆTI
Linda Dögg Agnarsdóttir
Linda Dögg skipar 8. sæti E-listans. Hún er leikskólaliði og stundar námi í leikskólafræðum við HÍ. Hún er gift Stefáni Jóhanni Sæmundssyni og á með honum 3 dætur,1 barnabarn og hundinn Eldeyju. Linda Dögg hefur starfað í leikskólum í 20 ár bæði sem leikskólastarfsmaður og sem deildarstjóri.
Linda er alin upp í Hafnarfirði en flutti búferlum til Grindavíkur árið 2003 þar sem hún var búin að vera meira og minna með annan fótinn síðan 1994. Þegar fjölskyldan þurfti að yfirgefa Grindavík 2023 hófst vegferð hjá þeim hvar fjölskyldan sæi fyrir sér að búa. Eftir þónokkra leit og umhugsun lentu þau hér í Vogunum og fluttu hingað haustið 2024. Fjölskyldunni líður vel í þessu litla samfélagi þar sem þau vilja vera þátttakendur í uppbyggingu með velferð og öryggi bæjarbúa í fyrirrúmi.
Áherslur Lindu Daggar liggja í skólamálum, bæði í leik- og grunnskóla. Þar skiptir máli að öllum líði vel og að þjónusta sé til staðar fyrir alla. Henni finnst mikilvægt að rýmið sé gott fyrir börnin en um leið sé horft til vinnuaðstöðu kennara þegar skólahúsnæði eru hönnuð.
Lindu Dögg finnst mikilvægt að það sé hlustað á bæjarbúa um það sem betur má fara, en í litlu bæjarfélagi verða allir að leggja hönd á plóg til að skapa gott og ríkt samfélag.
9.SÆTI
Alexandra Líf Ingþórsdóttir
Alexandra Líf skipar 9. sæti E-listans. Hún er uppalin í Vogunum þar sem stórfjölskyldan býr. Hún starfar í Heilsuleikskólanum Suðurvöllum hér í Vogum og einnig í íþróttamiðstöðinni.
Alexandra er með stúdentspróf frá FS og stefnir á að fara í háskólanám í haust í uppeldis og menntunarfræði. Áhugasviðið liggur í uppeldi barna og á því sviði sér hún sig í framtíðinni. Hún hefur gaman af því að hreyfa sig og finnst fátt skemmtilegra en að ferðast bæði innanlands og utan. Heima er samt alltaf best og þar unir Alexandra sér líka mjög vel.Alexandra var formaður nemendaráðs í Stóru Vogaskóla og í kjölfarið á því tók hún að sér formennsku í ungmennaráði Sveitarfélagsins Voga.
Henni finnst mikilvægt að rödd unga fólksins í samfélaginu heyrist og að á það sé hlustað.Alexandra festi nýverið kaup á íbúð hér í Vogunum ásamt kærasta sínum. Hérna vilja þau búa og sjá fyrir sér að verja framtíð sinni hér og ala upp fjölskyldu í þessu yndislega bæjarfélagi sem Vogar eru.

10.SÆTI
Samúel Þórir Drengsson
Samúel, eða Sammi eins og hann er alltaf kallaður (nema þegar hann er skammaður) er uppalinn í Ártúnsholti í Reykjavík, bjó svo í Breiðholti áður en hann flutti í Vogana í janúar 2020.
Sammi hefur margþætta reynslu, enda hefur hann yndi af að læra nýja hluti. Hann hefur starfað við bakstur, uppsetningar á símkerfum, stálsmíði, þáttagerð og vegagerð svo eitthvað sé nefnt. Síðan árið 2021 hefur hann verið að steikja hamborgara í litlum matarvagni. Sprotafyrirtæki sem hann stofnaði ásamt félaga sínum.
Sammi er kvæntur Elísu Fönn Grétarsdóttur, félagsliða.
Hann er faðir fjögurra barna. Þeirra Camillu Hjördísar, Fannars Þóris, Péturs Sólans og Drengs Helga. Hann er líka svo lukkulegur að vera afi tveggja æðislegar stúlkna, þeirra Aríu Sóleyjar og Hrafnhildar Myrkeyjar.
Sammi hefur mikinn áhuga á félagsstörfum og skipulagsmálum. Hann trúir því að samvinna í þágu samfélagsins skuli alltaf vera efst í huga þegar leitað er lausna. Hann sat í stjórn knattspyrnudeildar Þróttar þrjú leiktímabil ásamt öðrum tilfallandi verkefnum innan félagsins.
Sammi vill styrkja og bæta íþróttastarfið og leita góðra leiða til að hægt sé að hafa það sem fjölbreyttast og stöðugra en það er í dag.
Hann er vel að sér í ýmsum hlutum, enda kýs hann að gera sem flest sjálfur, og finnst dýrmætt að læra að gera hlutina sjálfur.
Hann er jafnfær að stýra vinnuvélum, vinna með handverkfærum, setja upp tölvukerfi eða snjallheimili.
Sammi hefur alltof mörg áhugamál til að telja upp hér, en bjórgerð, mótorhjól og ferðalög hafa tekið mestan sess hjá honum síðustu ár.
11.SÆTI
Logi Friðriksson
Logi skipar 11. sæti E-listans. Hann hefur búið hér í bæ frá 6 ára aldri og gekk alla sína grunnskólagöngu í Stóru-Vogaskóla.
Í dag er Logi menntaður rafvirki. Hann útskrifaðist úr rafvirkjun frá Tækniskólanum vorið 2025 og tók sveinspróf strax í kjölfar útskriftar. Hann lauk einnig stúdentsprófi seinna sama ár. Logi starfa hjá Rafverkstæði I.B. Í Reykjanesbæ.
Logi æfði og spilaði fótbolta með Þrótti Vogum fram að lokum 4. flokks en fluttist svo yfir til Keflavíkur í 3. flokk og spilaði þar í 2 ár.
Logi sinnir af miklum móð skátastarfi hjá Hraunbúum í Hafnafirði. Þar er hann sveitarforingi barna á aldrinum 13-16 ára ásamt því að taka að sér ýmis verkefni á þeim vettvangi.
Félagsmál og atvinnuuppbygging eru Loga hugleikin og sér hann kröftum sínum helst varið í þeim málaflokkum.

12.SÆTI
Tinna Magnúsdóttir
Tinna skipar 12. sæti E-listnas. Hún er uppalin í Hafnarfirði en hefur búið í Vogum síðan 2005. Hún er móðir fimm barna sem fædd eru 1998, 2006, 2007, 2021 og 2023. Hún er einnig 3ja barna amma. Tinna býr með þremur yngstu börnum sínum hér í Vogunum. Hér finnst henni forréttindi að búa í nálægð við yndislegu náttúruna og við þá ró sem er í samfélaginu okkar hér í Vogunum.
Tinna hefur starfað hjá Sveitafélaginu Vogum að miklu leyti síðan 2006. Bæði í leik- og grunnskóla, að mestu leyti þó í grunnskólanum. Sem stendur starfar Tinna sem sérkennslustjóri í Heilsuleikskólanum Suðurvöllum.
Tinna var á árunum 2017 - 2018 búsett í Þýskalandi. Það þótti henni áhugaverð upplifun sérstaklega þegar kom að skóla og menningarmálum.
Áhugasviðið Tinnu er augljóslega að fá að starfa með börnum og fjölskyldum þeirra. Hún lauk B.ed í grunnskólakennarafræðum frá HÍ 2010 og M.T. í sérkennslufræðum og skóla margbreytileikans frá HÍ 2022. Hún brennur fyrir mennta- og skólamálum, réttindum barna og leiðum sem virka til að styðja við börn og fjölskyldur þeirra. Tinna er sífellt að sækja sér aukna þekkingu og vitneskju á þessu sviði til að efla færnina og býr að því að eiga allskonar ráð í pokahorninu.
Samfélag okkar í Vogum samanstendur af miklum fjölbreytileika og eru tækifæri innan félagasamtaka sveitafélagsins margvísleg og fjölbreytt. Tinna bíður spennt að fá að vera frekari þátttakandi í ört stækkandi samfélagi, með öllum þeim áskorunum sem því fylgir.
Tinnu finnst langbest að njóta tímans með fjölskyldunni hvort sem það er heima eða á ferðalögum. Á ferðalögum finnst Tinnu einmitt tilvalið að upplifa umhverfið og læra af því. Það finnst henni næra bæði sál og líkama. Tinna nýtur líka núvitundar við prjónaskap og finnst fátt betra en að njóta náttúrunnar bæði með fjölskyldu og ferfætlingum.

13.SÆTI
Valdimar Pétursson
Valdimar skipar 13. sæti E-listans. Valdi eins og hann er jafnan kallaður er menntaður garðyrkjufræðingur og flugumsjónarmaður. Hann starfar sem flugumsjónarmaður hjá Icelandair í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Samgöngumál eru Valda mikilvæg. Hann sækir eins og margir í Vogum atvinnu sína út úr bænum og finnur vel á eigin skinni hve góðar samgöngur skipta miklu máli. Valdi telur mikilvægt að málefnum varðandi góðar samgöngur sé haldið á lofti.
Eiginkona Valda er Ingibjörg Jóhannesdóttir búfræðingur. Þau eiga þrjú börn, Fanndísi Huld listamann, Ásdísi Dröfn skólaliða og Pétur Indriða stálsmið og suðumann. Barnabörnin eru fimm.
Valdi og Ingibjörg fluttu í Vogana vorið 2022 frá Hafnarfirði og eru því sannkallaðir nýbúar.
Áhugamál Valda eru fjölskyldan og ferðalög. Að sögn fjölskyldumeðlima er almennt bílskúrsbras þó eitt mikilvægasta áhugamál hans sem hann ver gjarnan frítíma sínum í.

14.SÆTI
Þóra Bragadóttir
Þóra skipar 14. sæti E-listans. Hún er fædd í Hafnarfirði en hefur búið í Vogunum frá 1978. Hér hafa þau Hafsteinn eiginmaður hennar unað hag sínum vel. Þau eiga fjögur uppkomin börn og 16 barnabörn sem flest búa í Vogum. Með þeim eiga þau hjón margar gæðastundir sem Þóru finnst gott að njóta.
Þóra sat í sveitarstjórn Voga, sem þá hét Vatnsleysustrandarhreppur í 12 ár frá 1990 til 2002. Hún þekkir því tímana tvenna í bæjarmálum og hefur samanburð á því að búa og stýra sveitarfélagi með um 700 íbúa og að búa í sama sveitarfélagi með 2000 íbúa.
Þóra vann í fiskvinnslu í nokkur ár en árið 1988 stofnuðu þau hjónin fyrirtækið Beiti ehf. sem þau eiga og reka enn þann dag í dag. Beitir er eitt öflugasta fyrirtækið á landinu í sérsmíði og hönnun á búnaði fyrir veiðar og vinnslu á fiski. Starfsemin er öll í Vogum.
Þóra telur velferð barna og ungmenna ásamt málefnum eldri borgara vega mikið í bæ eins og Vogum. Framþróun og uppbygging bæjarins er ekki síður mikilvæg og er örugg stjórnun fjármála grundvöllur fyrir að verkefni nái fram að ganga, stór sem smá.


