
FRÉTTIR

Keilisnes til framtíðar
13. maí 2026
Skortur á atvinnutækifærum hefur um skeið verið viðvarandi í Vogum. Ástæðurnar geta verið margar og mismunandi en nálægðin við önnur atvinnusvæði ef til vill sú sem helst mætti nefna ásamt lóða- og aðstöðuskorti. Eins og flestir vita helst velferð samfélagsins og íbúa þess í hendur við atvinnutækifæri og uppbyggingu fyrirtækja. Með aukinni verðmætasköpun og fleiri atvinnutækifærum í sveitarfélaginu opnast leiðir að bættri velferð íbúa.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur verið einhuga um að setja kraft í atvinnuuppbygginu í sveitarfélaginu. Leiðin að því markmiði er að nýta land í eigu sveitarfélagsins og setjast að samningaborðinu við ríkið varðandi Flekkuvíkurland. Málið er á frumstigi en sveitarfélagið hefur sett það á dagskrá með opnun á vef www.keilisnes.is til kynningar. Það er skemmst frá því að segja að áhuginn er mikill og tækifærin mörg en við slíkar aðstæður er mikilvægt að vanda til verka.
Í Sveitarfélaginu Vogum er af nægu að taka í skipulögðum íbúðasvæðum og því lítil þörf á að bæta þar í eins og staðan er í dag. Hins vegar hefur gengið erfiðlega að efla atvinnuuppbyggingu í Vogum og finna til þess ákjósanleg svæði. Eins og einhverjir hafa ýjað að, þá er ekki verið að dusta rykið af gamalli hugmynd sem á rætur að rekja til þess tíma að Vatnsleysustrandhreppur var og hét, en sú hugmynd snérist um að byggja stórskipahöfn og álver í Flekkuvík. Núverandi hugmyndir snúa vissulega að þeim möguleika að höfn geti orðið að veruleika á Keilisnesi en álver er ekki á dagskrá.
Mikilvægt er að hafa í huga að frekari umræða og stefnumótun á eftir að eiga sér stað. Það verður gert með samráði og samtali við íbúa m.a. með íbúafundum. Íbúar munu alltaf hafa sterka rödd í verkefni sem þessu. Hugmyndir sem koma frá íbúum og hagsmunaaðilum eru lykillinn að því hverskonar tækifæri við viljum fá inn á slíkt atvinnusvæði.
Hafa ber í huga að hliðarverkefni verða til með verkefninu. Þar munu íbúar á Vatnsleysuströnd finna fyrir mesta ábatanum.
-
Möguleiki opnast á heitt og kalt vatn inn Vatnsleysuströnd
-
Viðhald og endurbygging Vatnsleysustrandarvegar verður að veruleika
-
Afhendingaröryggi raforku eflist, í formi jarðstrengs innan sveitarfélagsins
Það er því til mikils að vinna að þetta verkefni fari af stað þannig að innviðir sveitarfélagsins njóti góðs af. Ljóst er að auknar tekjur af fyrirtækjum opna möguleikann á sanngjarnari álögur á íbúa sveitarfélagsins.
E-listinn stendur heilshugar á bak við þessa vegferð og mun gera þetta eitt af sínum forgangsverkefnum á komandi kjörtímabili.
Við óskum eftir ykkar stuðningi. Setjum X við E.
Birgir Örn Ólafsson skipar 1. sæti E-listans
Forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum
Ingþór Guðmundsson skipar 4. sæti E-listans
Varabæjarfulltrúi og aðalmaður í skipulagsnefnd í Sveitarfélaginu Vogum

Vogar vaxandi bær - Áskoranir í skólamálum
10. maí 2026
Það er ánægjulegt að sjá hvernig Sveitarfélagið Vogar hefur vaxið og dafnað undanfarið. Nú höfum við náð þeim áfanga að 2.000 manns velja að hafa hér búsetu. Fleiri fjölskyldur setjast hér að sem leiðir óhjákvæmilega til fjölgunar barna í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins. Þessi þróun er gleðiefni en kallar jafnframt á að við bregðumst hratt og markvisst við til að tryggja börnum okkar góða aðstöðu til náms.
Undanfarið hefur verið unnið að því að mæta fjölgun nemenda með því að bæta við færanlegum kennslustofum bæði við Stóru-Vogaskóla og Heilsuleikskólann Suðurvelli. Þær lausnir eru tímabundnar en nauðsynlegar á meðan unnið er að varanlegri úrbótum.
Framundan er stækkun skólans og er undirbúningsvinna langt komin. Starfshópur sem skipaður var vegna stækkunarinnar hefur þegar skilað af sér áhugaverðum hugmyndum sem unnið verður áfram með. Það styttist því í að hægt verði að hefja framkvæmdir sem munu bæta aðstöðuna innanhúss til muna. Viðbyggingin mun meðal annars hýsa bókasafn og tónlistarskóla sveitarfélagsins og bæta svo um munar vinnuaðstöðu starfsfólks og nemenda. Innan veggja skólans fær Frístund einnig aðstöðu sem lengi hefur verið þörf á.
Hugmyndir að endurbótum á lóð skólans verða einnig unnar samhliða hönnun og byggingu á skólanum. Þær munu líta dagsins ljós fyrr en síðar og verða unnar í samráði og samstarfi við nemendur skólans.
Samhliða stækkun skólans stöndum við frammi fyrir áskorunum í leikskólamálum. Fjölgun barna á leikskólaaldri hefur verið hröð og ljóst er að núverandi húsnæði ræður ekki við eftirspurn. Unnið er að lausnum sem miða að því að fjölga deildum leikskólans svo hægt verði að fjölga í þeim hópi barna sem tekin verða inn næstkomandi haust. Sú lausn er nauðsynleg til að mæta brýnni þörf fjölskyldna í sveitarfélaginu.
Þótt um tímabundna úrlausn sé að ræða er jafnframt ljóst að huga þarf að uppbyggingu nýs leikskóla sem mætir áframhaldandi vexti samfélagsins. E-listinn mun standa fyrir því að vinna við hönnun og undirbúning nýs leikskóla í Grænubyggð hefjist. Sú vinna er nauðsynleg og ljóst að nýr leikskóli þarf að rísa í nánustu framtíð. Með því tryggjum við að börn á leikskólaaldri njóti öryggis og gæða til náms og leiks í Vogum.
Uppbygging skólamála krefst skýrra aðgerða, forgangsröðunar og góðrar samvinnu. Þannig tryggjum við að Vogar standi undir vexti og verði áfram sterkt samfélag fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Eva Björk Jónsdóttir skipar 2. sæti E-listans
Bæjarfulltrúi og formaður fræðslunefndar í Sveitarfélaginu Vogum

Fjölbreytt og mikilvægt starf í Álfagerði
6. maí 2026
Álfagerði og starfsemin þar er mikilvægur hluti í þjónustu sveitarfélagsins til íbúa. Fulltrúar frá E-listanum heimsóttu Álfagerði og kynntu sér starfseminni þar.
Oktavía Jóhanna Ragnarsdóttir, eða Día eins og hún er yfirleitt kölluð þekkir vel til sveitarfélagsins og starfsemi þess eftir að hafa búið hér ævilangt og starfað fyrir það.
Farið var yfir starfsemina í Álfagerði og þjónustuna sem veitt er eldri borgurum í Vogum. Ýmsir félagslegir viðburðir eru haldnir, heitur matur er borinn fram í hádeginu og ýmiskonar tómstundastarf innt af hendi. Svo eitthvað sé nefnt.
Það er áhugavert að heyra og sjá hve víðsýnin er mikil í þessu starfi og hversu margt er í boði. Það var líka fróðlegt að heyra hversu opið starfið er eins og t.d. með fræðsluviðburðum sem margir sækja þó þeir teljist ekki til hóps eldri borgara.
E-listinn segir - Takk Día

Framtíðin byrjar á Suðurvöllumi
4. maí 2026
Nokkrir frambjóðendur E-listans heimsóttu á dögunum Heilsuleikskólann Suðurvelli.
Óhætt er að segja að á þeim bæ sé líf og fjör. Þar undirbýr starfsfólkið börnin okkar, það dýrmætasta sem við eigum, fyrir framtíðina.
Heiða Hrólfsdóttir leikskólastýra tók á móti hópnum og leiddi hann um króka og kima Heilsusleikskólans Suðurvalla og sagði frá áskorunum og ævintýrum.
Líkt og í grunnskólanum þrengir verulega að öllu starfi í leikskólanum. Þar vaxa biðlistar í takt við stækkun sveitarfélagsins eins og óhjákvæmilega gerist í vaxandi samfélagi.
Til þess að allt gangi upp og starfið innan veggja skólans gangi snurðulaust fyrir sig þarf mikla útsjónarsemi starfsfólks. Bætt var við heilli deild með tilkomu lausrar skólastofu nýverið en ljóst er að bæta þarf aðstöðuna enn frekar fyrir haustið til að mæta þeirri
aukningu barna sem orðin er.
Við þökkum Heiðu og öðru starfsfólki fyrir góðar móttökur.

Fjárfesting í ungmennum skilar árangri
5. maí 2026
Á undanförnum misserum hef ég fengið tækifæri til að fylgjast náið með og taka þátt í þeirri jákvæðu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í málefnum barna og ungmenna í sveitarfélaginu Vogum. Sú þróun sem við höfum séð er ekki tilviljun heldur afrakstur markvissrar stefnu, aukins metnaðar og skýrrar sýnar um mikilvægi þess að setja þarfir ungs fólks í forgang.
Starf félagsmiðstöðvarinnar hefur tekið miklum framförum á stuttum tíma. Mæting ungmenna hefur aukist verulega og endurspeglar skýrt að þörfin fyrir öflugt, aðgengilegt og uppbyggilegt tómstundastarf sé til staðar. Þar skapast vettvangur þar sem ungmenni fá að njóta sín í öruggu umhverfi, efla félagsfærni sína og byggja upp sjálfstraust.
Í starfinu hefur verið lögð rík áhersla á fjölbreytni og að mæta ólíkum áhugasviðum og þörfum barna og ungmenna. Ungmennin fá tækifæri til að taka þátt í skapandi verkefnum, íþróttum og fjölbreyttum félagslegum viðburðum. Um leið er mikilvægt að hlusta á þeirra eigin rödd. Sértækt hópastarf fyrir unglinga með skynúrvinnsluvanda hefur m.a. verið innleitt sem er mikilvægt skref í átt að farsæld barna.
Í samtölum við ungmenni hefur komið skýrt fram að mörg þeirra hafa áhuga á að stunda íþróttir og tómstundir utan sveitarfélagsins, en upplifa hindranir vegna kostnaðar og samgangna. Þetta eru ábendingar sem við tökum alvarlega og munum bregðast við með markvissum aðgerðum, svo tryggja megi jafnt aðgengi fyrir öll.
Ég tel einnig mikilvægt að horfa til frekari uppbyggingar innviða sem styðja við heilsu og vellíðan. Þar vil ég sérstaklega nefna aðstöðu til líkamsræktar. Sjálfur átti ég góðar stundir í ræktinni í Vogunum á unglingsárum og veit af eigin reynslu hversu miklu máli slík aðstaða skiptir. Aðgengi að góðri líkamsræktaraðstöðu er ekki aðeins spurning um hreyfingu, heldur einnig um forvarnir, félagslega þátttöku og almenna heilsu samfélagsins.
Eitt af því sem vekur sérstaklega miklar vonir er nýtt verkefni sveitarfélagsins, Flotinn, flakkandi félagsmiðstöð. Með því er stigið mikilvægt skref í þá átt að færa þjónustuna nær ungmennunum sjálfum. Starfið mun fara fram úti í hverfum sveitarfélagsins utan hefðbundins opnunartíma og hefur það að markmiði að efla verndandi þætti í lífi ungmenna, draga úr áhættuhegðun og ná til þeirra sem síður taka þátt í hefðbundnu starfi.
Það er mikilvægt að undirstrika að þessi jákvæða þróun er ekki sjálfgefin. Hún er afrakstur skýrrar stefnumótunar þar sem velferð barna og ungmenna er sett í forgang. Þar hefur E-listinn gegnt lykilhlutverki með skýra sýn um barnvænt sveitarfélag og markvissa uppbyggingu í þessum málaflokki. Sá árangur sem við sjáum í dag er staðfesting á því að sú stefna er að skila raunverulegum árangri.
Þrátt fyrir þann góða árangur sem þegar hefur náðst er ljóst að verkefninu er langt frá því að vera lokið. Það er áfram mikilvægt að efla félagsstarf, bæta aðstöðu, styðja við fjölbreytta þátttöku og hlusta á þarfir ungmennanna sjálfra. Með því tryggjum við að enn fleiri fái notið sín og að samfélagið í heild styrkist.
Að mínu mati er það einföld staðreynd að fjárfesting í ungmennum er ein arðbærasta fjárfesting sem sveitarfélag getur ráðist í. Hún skilar sér í sterkari einstaklingum, heilbrigðara samfélagi og betri framtíð fyrir okkur öll.
Adrian Krawczuk skipar 6. sæti E-listans í Vogum
Hann er einnig starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar Borunnar

Hlökkum til að sjá ykkur á Sunnudaginn!
1. maí 2026

E-listinn opnar kosninarskrifstofu sína!
1. maí 2026
E-listinn opnar kosningaskrifstofu sína
sunnudaginn 3. maí kl.15
í Lions heimilinu að Sólvöllum, Aragerði 4 📍
Við hvetjum kjósendur til að kíkja við og kynnast frambjóðendum E-listans og fyrir hvað þeir standa
Öll velkomin ✅

Póli-tík
30. apríl 2026
Fráfarandi bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samanstendur af þremur framboðum, E-, D- og L-lista, þar sem E- og D-listi mynda meirihluta.
Það er vel þess virði að líta til baka og velta fyrir sér hvernig hlutirnir hafa þróast og hvernig hið pólitíska landslag hefur verið þetta kjörtímabil í Sveitarfélaginu Vogum.
Við upphaf kjörtímabils varð bæjarstjórn ljóst að til að ná tökum á rekstrinum og vinna sig í átt að sjálfbærni þyrftu allir að leggjast á eitt og leggja sitt af mörkum í þeirri vegferð.
Upplegg bæjarstjórnar var því skýrt, að leggja áherslu á breytt skipulag stjórnsýslu og vinnulag bæjarráðs og bæjarstjórnar. Efling tekjustofna og hagræðing í rekstri voru sett í forgang á sama tíma. Til þess að ná slíkum árangri þarf skýr markmið og eftirfylgni þeirra aðgerða sem lagt er upp með. Lykilþáttur í þeirri vegferð er samvinna og samtakamáttur þvert á flokka.
Sú nálgun sem hefur verið beitt þetta kjörtímabil er einstök, a.m.k. á þeim pólitíska ferli sem undirritaður hefur upplifað hér í Sveitarfélaginu Vogum. Nálgunin hefur því verið byggð á trausti og samvinnu þar sem bæjarfulltrúar mætast í lausnamiðaðri vinnu með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi í stað átakapólitíkur þar sem oft fylgir fjárhagsleg sóun. Oft eru markmið framboðanna svipuð eða söm en samtalið snýst um leiðirnar að settu marki.
Ef bæjarfulltrúar ná að setja pólitíkina til hliðar og horfa á stóru myndina þá má ná árangri til heilla fyrir alla íbúa samfélagsins. Það er einmitt þannig sem E-listinn hefur unnið á þessu kjörtímabili og erum við nú að sjá árangur þeirra vinnu. Í drögum að ársreikningi fyrir árið 2025 er sveitarsjóði skilað með jákvæðri rekstrarniðurstöðu. A-hluta í kringum 290 mkr. og A og B hluta í kringum 350 mkr. Óhætt er að segja að reksturinn sé búinn að ná jafnvægi og heilbrigðri stöðu sem gefur okkur kraft til fjárfestinga á næsta kjörtímabili.
Það er von mín að sú vinnumenning sem náðst hefur í bæjarstjórn og bæjarráði sveitarfélagsins skili sér inn í næsta kjörtímabil því þannig má ná miklum árangri sem allir íbúar sveitarfélagsins munu njóta góðs af í framtíðinni. Þannig mun E-listinn nálgast verkefnin áfram fái hann til þess umboð eftir kosningar.
Birgir Örn Ólafsson
Forseti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga og oddviti E-listans

Stóru-Vogaskóli í brennidepli - Skóli með skýra framtíðarsýn
27. apríl 2026
Frambjóðendur E-listans heimsóttu Stóru-Vogaskóla á dögunum og kynntu sér starfsemina. Hilmar Egill Sveinbjörnsson skólastjóri leiddi hópinn í allan sannleika um stöðu og starfsemi skólans.
Það er óhætt að segja að mikið og gott starf er unnið innan veggja skólans, oft við krefjandi aðstæður. Hver krókur og kimi er vel nýttur í skólanum og ljóst að skólasamfélagið horfir með þörf til frekari stækkunnar. Mismunandi hópum er mætt í hinum margvíslegu úrræðum innan veggja skólans enda samfélagið fjölbreytt í Vogum.
Starfshópur um viðbyggingu við Stóru-Vogaskóla hefur skilað af sér tillögum að breytingum á skólahúsnæðinu. Við þær breytingar opnast einnig tækifæri til að hanna og þróa skólalóðina samhliða uppbyggingunni sem fer í hönd á komandi kjörtímabili.
E-listinn þakkar skólastjóra fyrir góðar móttökur og kynningu.

Gott samtal um málefni eldriborgara í Vogum
26. apríl 2026
Allir hópar samfélagsins hafa rödd sem mikilvægt er að hlustað sé á. Á dögunum hittu nokkrir frambjóðendur E-listans félaga úr stjórn Félags eldri borgara í Vogum.
Margt var rætt og ljóst að ýmis málefni eru hópnum hugleikin. Má þar meðal annars nefna styrki sem veittir eru félaginu, upplýsingagjöf og hvernig best sé að ná til sem flestra í hópnum.
E-listinn hefur nú þegar innleitt helstu stefnumál Landsambands eldri borgara fyrir komandi sveitastjórnarkosningar s.s. starfrækslu öldungaráðs byggt á samningi um félagsþjónustu í samstarfi við Suðurnesjabæ, veitingu afsláttar af fasteignagjöldum og boðið upp á hvatastyrk (frístundastyrk) til eldri borgara.
E-listinn mun halda áfram á sömu braut og efla velferðarmál eldri borgara í Vogum.
E-listinn þakkar kærlega fyrir sig og væntir áfram farsæls samstarfs á komandi kjörtímabili.


Heimsókn E-listans í Íþróttamiðstöðina og Boruna
25. apríl 2026
Frambjóðendur E-listans kynntu sér starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar og Borunnar á dögunum.
Fyrir íþróttamiðstöðinni fer Ásta María Guðmundsdóttir forstöðumaður en Kamilla Huld Jónsdóttir stýrir félagsmiðstöðinni.
Rætt var um núverandi rými og framtíðarsýn í uppbyggingarmálum íþróttamiðstöðvarinnar sem þjóna myndi stækkandi samfélagi. Sérstaklega var gaman að heyra hversu ofarlega lýðheilsan er í starfseminni þegar hugsað er til framtíðar.
Félagsmiðstöðin Boran hefur tekið miklum stakkaskiptum að undanförnu. Þar er öllum börnum er mætt, hverjar sem þarfir þeirra eru. Aðstöðuna þyrfti að bæta og er E-listinn reiðubúinn að vinna að þeim málum á komandi kjörtímabili.
Ljóst er að hugsað er út fyrir boxið á báðum þessum starfsstöðvum sveitarfélagsins. Það er aðdáunarvert að finna eldmóðinn og áhugann sem svífur yfir vötnum.
Takk fyrir góðar móttökur og takk fyrir okkur.

Ungmennaráð Voga, UNGVOG
22. apríl 2026
E-listinn studdi stofnun Ungmennaráðs á líðandi kjörtímabili. Það var mikið framfaraskref og strax kom í ljós mikil orka og vilji þessa íbúahóps Voga til að gera betur og láta í sér heyra.
Mjög svo ánægjulegur og upplýsandi fundur var haldinn nýlega með fulltrúum Ungmennaráðs Voga, UNGVOG. Þessir fulltrúar komu vel undirbúnir og ákveðnir til fundarins og upplýstu frambjóðendur E-listans um málefni sem brenna á ungmennunum okkar. Ýmislegt er hópnum hugleikið. Má þar nefna málefni sem tengjast grunnskólanum, aðstöðu utan skóla og í frítímum, samgöngur og íþróttamál. Vel var tekið í hugmyndir fulltrúanna og eru einhverjar þeirra nú þegar komnar á blað.
Það er jákvætt að raddir mismunandi hópa samfélagsins fái hljómgrunn og mun E-listinn halda áfram að hlusta og framkvæma í takt við þær.
Við þökkum fulltrúum UNGVOG kærlega fyrir komuna og væntum gæfuríks og öflugs samstarfs á komandi kjörtímabili.

Öflugur hópur fyrir framtíð Voga
19. apríl 2026
E-listinn býður fram öflugan hóp fólks í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Í hópnum er mikil orka og gleði. Hann samanstendur af reynslumiklum einstaklingum sem komið hafa að bæjarmálum á margvíslegan hátt. Núverandi og fyrrverandi fulltrúum í bæjarstjórn, fólki sem situr í nefndum sveitarfélagsins og starfsfólki þess.
Aðrir sem skipa sæti á E-listanum eru sterkir einstaklingar sem hafa víðtæka reynslu víða að úr samfélaginu. Þau eru virkir íbúar og þekkja vel hvað gerir gott samfélag betra. Þau eru mikilvægur stuðningur og fersk rödd sem styður við reynsluna.
Þessi hópur E-listans mun standa vörð um sterka stöðu Sveitarfélagsins Voga og hagsæld þess í komandi framtíð.
Fólkið á bakvið E-listann
12. apríl 2026
E-listinn í Vogum kynnir með stolti 14 manna framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Hópurinn er fjölbreyttur og samanstendur af fólki með ólíkan bakgrunn en sameiginlegan vilja til að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið okkar. Þetta er fólk sem þekkir Vogana vel og vill sjá þá blómstra áfram.
Við hlökkum til að kynna fólkið á bakvið listann á næstu dögum.
-
Birgir Örn Ólafsson, deildarstjóri og forseti bæjarstjórnar
-
Eva Björk Jónsdóttir, deildarstjóri og bæjarfulltrúi
-
Friðrik Valdimar Árnason, teymisstjóri hleðslulausna og bæjarfulltrúi
-
Ingþór Guðmundsson, rekstrarstjóri og varabæjarfulltrúi
-
Inga Rut Hlöðversdóttir, kirkjuvörður og framkvæmdarstjóri
-
Adrian Krawczuk, rafvirki og starfsmaður félagsmiðstöðvar
-
Gunnar Richter, deildarstjóri/sérfræðingur á fjármálasviði
-
Linda Dögg Agnarsdóttir, leikskólaliði
-
Alexandra Líf Ingþórsdóttir, starfsmaður leikskóla og íþóttarmiðstöðvar
-
Samúel Þórir Drengsson, verkamaður
-
Logi Friðriksson, rafvirki
-
Tinna Magnúsdóttir, grunnskólakennari/mt. sérkennslufræði
-
Valdimar Pétursson, flugumsjónarmaður
-
Þóra Bragadóttir, forstjóri
Hlökkum til að hitta ykkur
Kveðja E-listinn
E-listinn býður fram í sveitarstjórnarkosningunum í Vogum.
10. Apríl 2026
Við erum hópur fólks sem deilir sameiginlegri sýn um öflugt og framsækið samfélag. Þó að einstaklingarnir standi ekki í forgrunni, þá skiptir samheldnin öllu máli – saman myndum við heild sem vinnur fyrir íbúana.
Á næstu dögum munum við kynna okkar fólk, áherslur og hugmyndir fyrir framtíð Voga.
Fylgstu með.
E-listinn


STÓRA MYNDIN
11. Maí 2022
Kæru kjósendur.
Það er óhætt að segja að margt hafi breyst á liðnum árum. Efnahagshrun, heimsfaraldur og eldgos svo eitthvað sé nefnt. Margt höfum við séð og upplifað sem við áttum ekki von á. Við horfum fram á krefjandi en spennandi tíma í Vogum og á Suðurnesjum öllum. Sveitarfélagið Vogar hefur eðli málsins samkvæmt þurft að stóla á samvinnu og samstarf við nágranna sína þegar kemur að stærri verkefnum. Við höfum metnað og vilja til að bæta þjónustu við íbúa okkar en um leið þurfum við að sýna aðhald og ráðdeild. Undanfarið kjörtímabil hafa mörg stór mál rekið á fjöru okkar.
Ber þar fyrst að nefna svokallað „Línumál“. Án orðalenginga þá höfum við þurft að berjast á móti straumnum til að opna augu alþingismanna og annarra fyrir mikilvægi þess að setja Suðurnesjalínu 2 í jörðu. Það er ekki einungis gert vegna ásýndar heldur einnig vegna mikilvægi skipulags og síðast en ekki síst öryggisins vegna. Í niðurstöðuskýrslu jarðvísndarstofnunar Háskóla Íslands um náttúru- og eldgosavá í Sveitarfélaginu Vogum, kemur fram að öruggast sé að leggja línuna í jörðu norðan Reykjanesbrautar. Við munum berjast fyrir þessum hagsmunum Suðurnesjamönnum öllum til heilla og munum ekki láta hræðsluáróður beygja okkur af leið.
Við höfum einnig talað fyrir því að rannsóknir hafi sinn gang í Hvassahrauni þegar kemur að mögulegu flugvallarstæði. Einsleit atvinnupólitík má ekki verða til þess að Suðurnesjamenn kasti frá sér mögulegu tækifæri af því einu, að alllt þurfi að fara fram á Keflavíkurflugvelli. Nú kann vel að verða að þetta verði ekki fýsilegur kostur en gerum okkur ekki upp niðurstöður fyrirfram. Sláum ekki út af borðinu tækifæri sem getur gefið okkur aukinn kraft inn á svæðið. Klárum vinnuna og tökum svo ákvörðun.
Eitt af stóru málum okkar er nýtt vatnsból fyrir sveitarfélagið. Mikilvægt er að Sveitarfélagið Vogar eignist sem fyrst nýtt vatnsból sem gæti þá þjónað sem varavatnsból fyrir öll Suðurnesin enda mikilvægt að hugsa í nýrri nálgun þegar kemur að innviðum á svæðinu. Á tímum sem þessum skiptir máli að hafa fjölbreytta innviði sem geta stutt hver við aðra.
Síðast en ekki síst verður við að hafa þor og dug til að ræða kosti og galla sameiningar. Við munum halda áfram upplýstri og málefnalegri umræðu um kosti og galla sameiningar en á endanum verða það íbúarnir sem ákveða framtíðina í því.
Áfram Vogar – Áfram Suðurnes.
Birgir Örn Ólafsson,
Eva Björk Jónsdóttir,
Friðrik Valdimar Árnason,
Ingþór Guðmundsson,
Hanna Lísa Hafsteinsdóttir,
frambjóðendur í 1.–5. sæti E-listans í Sveitarfélaginu Vogum.

AF SKIPULAGSMÁLUM Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM
6.maí 2022
Það eru mörg tækifærin í Vogum þegar kemur að skipulagi og uppbyggingu og því mikilvægt að vandað sé til verka.
E-listinn hefur beitt sér fyrir því að auka lóðaframboð og klára svæði sem standa næst kjarna bæjarins. Miðbæjarkjarninn er við það að verða fullbyggður og undanfarið höfum séð mikinn gang í uppbyggingu Grænuborgarhverfis sem mun allt að tvöfalda stærð sveitarfélagsins þegar yfir lýkur. Á stefnuskrá E-listans er fyrirhuguð hugmyndasamkeppni um skipulag hafnarsvæðisins og Hafnargötureitsins sem á eftir að verða spennandi svæði. Við skipulag slíks reits er mikilvægt að vanda til verksins. Annað svæði sem er í eigu sveitarfélagsins er ofan Dalahverfis en það væri hægt að ráðast í íbúðauppbyggingu þar með tiltölulega litlum fyrirvara.
Vert er að minnast á þau metnaðarfullu markmið að fara í hönnun skólalóðar Stóru-Vogaskóla og íþróttarsvæðis með framtíðarfjölgun í huga. Væntingar eru til þess að samningar takist við meðeigendur okkar að óskiptu heiðalandi Vogajarða, svo sveitarfélagið fái frekari lóðir til úthlutunar, og verður lögð sérstök áhersla á að vinna að þessu á nýju kjörtímabili. Eitt af þeim svæðum sem þolir frekari stækkun er iðnaðarsvæðið þar sem mörg spennandi tækfæri bíða handan hornsins.
Hvað varðar stærri framkvæmdir þá lítum við til Flekkuvíkur en nú liggur m.a. fyrir áhugi fyrirtækja á uppbyggingu landeldis sem mögulega má sjá fyrir sér þar í framtíðinni. Hvað varðar frekari íbúðauppbyggingu þá væri það óskynsamlegt að fara í uppbyggingu á dreifðum byggðarkjörnum enda kallar slíkt á mikinn tilkostnað og þjónustuþunga ef standa á almennilega að málum. Nær er að einbeita sér að þéttingu byggðar og nýta þá innviði sem þegar eru fyrir hendi. Það er óhætt að segja að í víðfeðmu sveitarfélagi okkar séu mörg tækifæri sem E-listinn er tilbúinn að vinna hörðum höndum að og sjá verða að veruleika.
Birgir Örn Ólafsson
Oddviti E-listans
Ingþór Guðmundsson
Forseti bæjarstjórnar
Sveitafélaginu Vogum

MIKILVÆGI GRÆNNA SVÆÐA Í BÆJARFÉLAGINU OKKAR
4.maí 2022
Í Vogunum er gott að búa. Við Vogabúar erum heppin hvað varðar náttúruna og aðgengi að góðum gönguleiðum í og við bæjarfélagið okkar. Það eru einnig tækifæri til að fjölga enn frekar grænum svæðum í bæjarfélaginu okkar. Græn svæði og leiksvæði bæði fyrir börn og fullorðna er eitt af því sem okkur í E-listanum er hugleikið. Að fá börnin og foreldra til að fara út og leika og njóta og jafnvel kynnast nágrönnum okkar betur meðan krakkarnir leika sér. Þannig getum við aukið samheldni í bæjarfélaginu okkar.
Með því að auka græn svæði og leiksvæði fyrir börnin okkar eflum við lýðheilsu og styðjum við heilsubæinn Voga. Þess vegna vill E-listinn:
• Gera grænan áningastað á Glaðheimareitnum þar sem sagan fær sitt pláss.
• Útbúa hundagerði á svæði ofan við Iðndal.
• Koma upp úti hreystitækjum og efla og fjölga leiksvæðum
• Lýsa sleðasvæðið í Aragerði og sparkvöllinn við grunnskólann
• Hefja vinnu við heildarskipulag íþróttarsvæðis og íþróttamannvirkja.
• Halda áfram uppbyggingu reið-, hjóla- og göngustíga m.a. með því að tengja stígakerfið okkar við stígakerfi Reykjanesbæjar.
Það er mikilvægt að horfa til framtíðar og vinna markvisst að því að gera bæjarfélagið okkar enn grænna með bætta lýðheilsu að leiðarljósi. Settu heilsueflandi samfélag á oddinn og settu x við E á kjördag.

ÁVARP ODDVITA
28.apríl 2022
Kæru íbúar og kjósendur.
Nú líður senn að sveitarstjórnarkosningum í Sveitarfélaginu Vogum sem fram fara þann 14. maí n.k. Á þessum tímamótum er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og horfa um leið til framtíðar.
Óhætt er að segja að sveitarfélagið standi nú á ákveðnum tímamótum þar sem tækifærin eru handan við hornið og því mikilvægt að haldið sé vel á spilunum. Sveitarsjóður hefur verið í góðu jafnvægi undanfarin átta ár að undaskyldum síðustu tveimur árum sem var viðbúið í ljósi aðstæðna. Okkur er mikið í mun að fjölga hér íbúum og um leið styrkja tekjugrundvöllinn til framtíðar. Það er erfitt að hugsa sér sjálfstæði sveitarfélagsins ef ekki er byggt frekar undir tekjustofninn. Um miðbik kjörtímabilsins skall á hið margumrædda Covid-19 sem setti ansi margt úr skorðum og hefur vissulega tafið sum verkefni sem við hefðum viljað sjá verða að veruleika fyrr, en nú horfir til betri vegar. Stefnuskrá E-listans tekur mið af þessu og munu íbúar sjá verkefni sem eiga eftir að fara af stað, verkefni sem eru í gangi og svo nýjar áherslur í takt við breytta tíma. Við hlökkum til að eiga við ykkur samtal um framtíðina og munum leggja okkur fram um að hlusta og feta leiðir til hagsbóta fyrir samfélagið.
E-listinn er reiðubúinn að leiða sveitarfélagið í gegnum þessa spennandi tíma sem framundan eru og hvet ég þig kjósandi góður til að nýta atkvæðisrétt þinn á kjördag og setja X við E.
Með vinsemd og virðingu.
Birgir Örn Ólafsson
Oddviti E-listans.

STÓRI PLOKKDAGURINN
24.apríl 2022
Félagar í E-listanum tóku að sjálfsögðu þátt í stóra plokkdeginum eins og undanfarin ár. Þetta var auðvitað ótrúlega skemmtilegt. Hvetjum fólk til að ganga vel um umhverfið og passa að setja plastið í endurvinnslutunnuna.

GLEÐILEGA PÁSKA
17.apríl 2022
Við óskum Strandaringum og Vogamönnum nær og fjær gleðilegra páska
E LISTINN
Aragerði 4
